Forsíða > Starfsemin > Hótel Kattholt


Hótel Kattholt

Frá opnun Kattholts hefur verið starfrækt gæsla á heimilisköttum sem þurfa að dvelja þar í lengri eða skemmri tíma
á meðan eigendurnir eru í burtu frá heimilum.

Kattagæslan fer þannig fram að eigandinn pantar gæslu fyrir dýrið.

Kötturinn þarf að uppfylla skilyrði um bólusetningu við kattafári og ormahreinsun.

Kisan fær rúmgott búr og Þar hefur hún allt sem hún þarfnast.

Nauðsynlegt er að kettinum fylgi allar upplýsingar um mataræði.

Gistingu er hægt að panta í síma 567-2909 og/eða með því að senda tölvupóst á kattholt@kattholt.is.

Verð fyrir hvern sólarhring og kött er kr. 1,500,-

 

 

 

 

 

Á myndinni hér til hliðar er Brandur, einn af mörgum gestum hótelsins. Hann fær hér heimsókn frá systkinunum Guðríði og Jóni Andra.



Til baka


Kattavinafélag Íslands - Stangarhyl 2 - 110 Reykjavík  - Sími: 567 2909 - kattholt@kattholt.is

Vefhönnun: Tónaflóð